Logo

Um Björg Guðmundsóttur, í stuttu máli

fermm

EndurnyG
Björg fæddist á fæðingarheimili Kópavogs 13. nóvember 1960. Foreldrar hennar voru Guðmundur Björgvin Guðmundsson, málarameistari og Kristólína P. S. Kristinsdóttir, húsfreyja. Björg var yngst af sjö systkynum. Hún fór snemma að vinna fyrir sér, fór strax á vinnumarkaðinn eftir skyldunámið.

Björg kynntist Kristjáni strax á unglingsaldri. 14. júlí 1984 giftust Björg og Kristján. Saman eignuðust þau tvær dætur, Stefaníu Eiríku og Evu Lind. Á silfurbrúðkaupsdaginn árið 2009 endurnýjuðu þau hjúskaparheitin.

Björg naut þess mjög að vera úti í náttúrunni og ferðuðust þau hjónin mikið. Björg vissi fátt betra en að vera með fjölskyldu sinni og það besta sem hún vissi var án efa barnabörnin fimm sem hún lætur eftir sig. Þau eru: Kristín Gyða, Hafdís Björg, Kristján Unnar, Vilhelm Breki og Bjarney Lilja. Björg var mjög mikið með þeim og naut þess að taka þau með sér upp í Þjórsárdal, þar sem þau hjónin eiga fallegt hjólhýsi og var það hennar uppáhaldsstaður. Björg og Kristján áttu margar góðar stundir í Þjórsárdalnum umvafin barnabörnum, fjölskyldu og vinum.

Björg bjó lengst af í Kópavogi og var hún ávalt mjög stolt af uppruna sínum. Árið 2006 greindist Björg fyrst með krabbamein, hún fór í margar aðgerðir vegna þess og árið 2009 greindist hún með MND, ólæknandi taugahrönunarsjúkdóm.

Undir lokin var Björg mjög búin að missa mátt. Hún var komin í rafmangshjólastól, átti erfitt með að borða sjálf og þurfti að nota rör til að drekka.

Björg lést á líknardeild Landsspítalans í Kópavogi 7. júní síðastliðinn eftir erfið veikindi einungis fimmtug að aldri.
Megi minning hennar vera ljós í hjarta okkar.

Nánari upplýsingar um Björgu má fá á: vtb.is

Um Kristinn Guðmundsson, í stuttu máli

kiddi

Allt í botni
Kristinn fæddist á Siglufirði 14. febrúar 1953. Foreldrar hans voru Guðmundur Björgvin Guðmundsson málararameistari og Kristólína P.S.
Kristinsdóttir, húsfreyja .

Kristinn kemur úr sjö systkina hópi. Elst er Ásta, svo Ingvar, Margrét, Þóra, þá Kristinn, þar á eftir Hulda og Björg sem nú er látin.
Kristinn lærði málarann og fór á samning hjá föður sínum. Kristinn var með sjálfstæðan rekstur þar til hann veiktist árið 2006.

Börn Kristins eru Inga Birna, Jón Kjartan, Íris og Örvar.

Sjúkrasaga Kristins á sér langan aðdraganda. Árið 2006 byrjar hann að finna fyrir einkennum MND en fær ekki greiningu fyrr en um vorið 2008.
Hægt er að lesa sjúkrasögu Kristins inn á slóðinni: http://kiddimalari.blogcentral.is/

Í dag býr Kristinn einn og er í rafmagnshjólastól. Hann er með aðstoðarmanneskju allan sólarhringinn. Hann er algörlega upp á aðra kominn, búinn að missa allan mátt í fótum og hendurnar orðnar mjög slæmar. Hann getur rétt svo borðað sjálfur og notast við spelku eða rör til að drekka.

Áhugamál Kristins eru tónlist, kvikmyndir og útivera þegar veður leyfir.

Hægt er að fylgjast með Kristni eða Kidda málara eins og hann er kallaður inn á síðunni http://kiddimalari.blogcentral.is/

Þáttur um systkinin

Hér má sjá rétt rúmlega árs gamlan Ísland í dag þátt um þau systkinin:
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTV5C9D3C27-9C72-4C5D-886C-47CD6033EC70
siminn
gap
asics

hugsaser
Hugsa sér! Vefhönnun