Logo

MND_animMND (Motor Nourone Disease), Hreyfitaugahrörnun.
Sjúkdómirinn er banvænn og ágerist venjulega hratt. Hann herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.frv. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er 1- 6 ár en sumir lifa lengur. Talið er að 10% geti lifað upp undir 10 ár. Á Íslandi eru á hverjum tíma 15-20 manns með MND. Á hverju ári greinast u.þ.b. 5 manns með MND á Íslandi.

Ekki er vitað um orsök sjúkdómsins. Það er eitthvað sem veldur því að boð komast ekki á milli hreyfitaugafruma og vöðvinn svarar ekki því sem hugurinn vill. Hreyfitaugafrumurnar visna og deyja. Vegna hreyfingarleysis rýrna vöðvarnir. Mismunandi er hvernig sjúkdómsferlið er hjá fólki, hjá sumum byrjar sjúkdómurinn í taugum sem stjórna fótleggjum, hjá öðrum í taugum sem stjórna handleggjum og hjá enn öðrum byrjar hann í vöðvum sem stjórna öndun, kyngingu og tali. Sjúkdómurinn herjar á vöðva sem lúta viljastýrðum hreyfingum, þ.e.a.s. ekki vöðva eins og hjarta og önnur líffæri sem starfa óviljastýrt.

Nánar um efnið:
Hér er góð grein á síðu MND-félagsins
Hér eru ýtarlegar upplýsingar á vef MND Associaton

siminn
gap
asics

hugsaser
Hugsa sér! Vefhönnun