Logo

Dagur15

Lokaspretturinn
Hin fjögur fræknu lögðu af stað í gær frá Meðalfellsvatni rétt fyrir hálf-tíu. Ég, Hlynur, Jónas og María. Ögn svalt var um morguninn og hjólreiðamenn óvissir hvort þeir væru of léttklæddir en annað kom á daginn stuttu síðar. Leiðin gékk mjög greiðlega og var virkilega gaman að hjóla í góðra vina hópi, með goluna í bakið (í fyrsta sinn) og sól í heiði. Við gatnamótin Suðurlandsvegur/Vestulandsvegur bættust tveir hjólakappar við í hópinn en þeir voru reyndar á mótordrifnum hjólum. Þetta voru lögregumenn sem veittu okkur fylgd frá gatnamótunum að ómalbikaða kaflanum í Heiðmörk. Þetta var stemming!!!
Við komum á áfangastað rétt fyrir hálf-eitt og þar beið fríður hópur fólks. Gaman að fá svona móttökur!
Í Furulundi var svo grillað og skemmt sér. Fallegur dagur og hvergi betra að vera.
Ég þakka kærlega öllum þeim sem fylgdust með og hétu á mig og minni á að símanúmerið er virkt út mánuðinn, þannig enn er hægt að leggja þessu lið.
Einnig mættuð þið gefa öllum þeim gaum sem á einn eða annan hátt aðstoðuðu mig við þetta verkefni með að smella hér. Án þeirra hefði þetta ekki gengið!

IMG_8916 IMG_8923 IMG_5271 IMG_5272


Tölfræðin samkv. mínum mæli.
Vinaminni - Furulundur
Komið í Borgarnes 12:25
2 tíma og 23 mín á hjólinu
Hjólaðir 52 km
Meðalhraði 22.4 km/klst
Hámarkshraði 65 km/klst

Dagur14

Frí í dag
Sól og sumar við Meðalfellsvatn.
Á morgun er það síðasti spottinn, um 52 km., í Furulund.
Ég mun leggja af stað héðan upp úr kl. 9.

Dagur 13

Mikið niðurávið – og það er gott!
Ég vaknaði vel út hvíldur í morgun. Lagði af stað rúmlega átta og gekk ferðin mjög greiðlega inn á Borgarnes. Mestmegnis niður í móti, sól og logn.  Ég kom kl. 9:40 í Shell skálann og þar með var ég búinn að vinna upp tíma og kominn á upprunalega áætlun. Eftir smá morgunverð lagði ég af stað inn í Hvalfjörð rétt rúmlega 10. Áfram gekk ferðin mjög greiðlega að gatnamótunum inn í Hvalfjörð en í Hvalfirði hægði aðeins á mér og stafaði það af holtum og hæðum því enn hef ég ekki getað staðið á hjólinu út af hnénu og því hægja allar brekkur verulega á mér, þó þær séu ekki háar. Rétt í lokinn kom smá demba á mig. Margt var um manninn í bústaðnum og var virkilega gaman að koma þangað.
IMG_8906 IMG_8909 DSC02080 IMG_8911

Tölfræðin samkv. mínum mæli.
Hransnef - Borgarnse
Komið í Borgarnes 09:40
1 tíma og 32 mín á hjólinu
Hjólaðir 36 km
Meðalhraði 23.9 km/klst
Hámarkshraði 55 km/klst

Borgarnes - Vinaminni
Komið í bústað 14:50
3 tíma og 49 mín á hjólinu
Hjólaðir 75 km
Meðalhraði 19.8 km/klst
Hámarkshraði 60 km/klst

Dagur 12

Hámarkshraði
Ég lagði af stað frá Blönduósi rétt rúmlega átta í morgun. Það var hæglætis veður og skýjað. Þetta var frekar auðveldur spotti að Staðarskála. Mikið niðurávið og fáar hindranir.
Í Vatnsdalnum stoppaði ég smá stund á brúnni og fylgdist með tveimur dönskum veiðimönnum reyna sig við fiskinn. Annar stóð á brúnni og leiðbeindi hinum. Ég fylgdist með smá stund. Fiskurinn var auðséður þó erfitt væri að átta sig á því hvort hann væri Lax eða Birtingur. Ekki tóskt þeim að setja í hann á þeim tíma sem ég fylgdist með.
Annars tíðindalítið að Staðarskála. Þegar ég kom þangað tók ég mér góða pásu en ákvað svo að halda lengra. Með því móti ætti mér að takast að fara að Meðalfellsvatni á morgun, hitta fjölskyldina og eiga einn frídag með henni.
Ég lagði af stað á heiðina áfram í logni og fínu veðtri. Þegar á toppinn var komið gustaði svolítið og það rigni á mig frá toppi og næstu 25km. En það var nú ekki mikið mál. - Við höfum séð það verra… við Einar.
Gisti í nótt á sveitahótelinu Hraunsnefi, í boði þeirra. Þetta er mjög flott aðstaða. Það er heitur pottur og maður má meira að segja verlsa sér einn kaldan og taka með í pottinn. - Bara eins og í útlöndum maður….
Semsagt bara góður dagur og vonandi verður hann það líka á morgun. Þá er bara stuttur endasprettur eftur á laugardag.
IMG_8904 IMG_8905

Tölfræðin samkv. mínum mæli.
Blönduós - Staðarskáli
Komið í Staðarskála 13:35
4 tíma og 35 mín á hjólinu
Hjólaðir 85 km
Meðalhraði 18.6 km/klst
Hámarkshraði 49 km/klst

Staðarskáli - Hraunsnef
Komið að Hraunsnefi 20:00
3 tíma og 25 mín á hjólinu
Hjólaðir 56 km
Meðalhraði 16.6 km/klst
Hámarkshraði 39 km/klst

Dagur 11

Hjólað með fylgdarliði
Ég vaknaði frekar illa sofinn og þreyttur í morgun. Hafði hent tjaldinu út fyrir vegkannt eins og hver annar útlendingur, c.a. 10km frá Akureyri, kvöldið áður. Lagði af stað rétt fyrir sex inn að Öxnadalsheiði. Það voru 6 m/s á móti mér og vanst þetta seint. Þegar ég var kominn yfir heiðina og á sléttlendið aftur gerði logn og ég hélt fínum hraða inn að Varmahlíð. Þar biðu mín hjólagarpar tilbúnir í slaginn. Það voru þær María og Þuríður ásamt Emil, syni Maríu, sem byrjaði og endaði túrinn. Í Varmahlíð var stoppað til að fá sér hádegisverð og svo hélt öll hersingin af stað. Það var svolítið klifur upp á Vatnsskarð en niðurleiðin var ansi skemmtileg. Eftir Vatnsskarðið voru ekki stórar brekkur til að sigrast á.
Það var rosaleg notalegt að hjóla í fylgd annara og þær voru svo ferskar að minn maður mátti hafa sig allan við!
Við lentum á Blönduósi rétt fyrir sex og þá fór öll hersingin, ég og fjölskyldurnar tvær, í sund og svo út að borða.
Ég gisti í kvöld í flottum sumarbústað á tjaldsvæðinu á Blönduósi. Rosa flott!
IMG_8900 IMGP0080 IMGP0082 IMGP0094


Tölfræðin samkv. mínum mæli
Komið á Varmahlíð 12:45
7 tíma og 12 mín á hjólinu
Hjólaðir 98 km
Meðalhraði 13.6 km/klst
Hámarkshraði 45 km/klst

Hjólaði 1 klst,, 10km, í gærkveldi

Varmahlíð - Blönduós
Komið á Varmahlíð 17:50
2 tíma og 59 mín á hjólinu
Hjólaðir 52 km
Meðalhraði 17.6 km/klst
Hámarkshraði 56 km/klst

Dagur 10

Enn skemmtilegra
Ég var frekar rólegur í morgunsáriði þegar ég vaknaði í fallegu veðri á Mývatni. Lagði af stað rúmlega 8. Gekk vel og langir niðurkaflar. Ég var um fjóra tíma að Goðafossi. Þar fékk ég mér kraftmikla kjötsúpu og staldraði við í um klst. Hélt áfram, enn í blíðskapar veðri og lenti á Akureyri rúmlega fjögur. Þetta var mjög góður dagur. Tvær þokkalega stífar brekkur en líka langir og þægilegir niðurkaflar.

IMG_8885 IMG_8887 IMG_8891 IMG_8895

Tölfræðin samkv. mínum mæli
Komið á Akureyri 16:20
6 tíma og 10 mín á hjólinu
Hjólaðir 101 km
Meðalhraði 16.4 km/klst
Hámarkshraði 55 km/klst

PS. Ég bætti við 10km núna í kvöldblíðunni... bara til að stytta morgundaginn.

Dagur 9

Langur dagur
Ég lagði af stað rétt rúmleg sex um morguninn frá gistihúsi Olgu. Það var frekar kallt og skilti á leið út úr bænum sagði mér að uppi á Mörðudal væri +1°. Það var jafnt á fótinn að háu brekkunni og ég orðinn hálf tilfinningarlaus í tærnar af kulda og sá fyrir mér að áður en ég færi þarna upp yrði ég að klæða mig í föðurlandið. En um hálf tíu, þegar ég er í brekkufætinum, lætur sólin sjá sig og það hlýnaði heldur betur. Brekkan var ströng upp en eftir hana fékk ég góðan niðurtúr. Síðan var þetta svoldíð bröllt svona upp og niður og þarna fór ég upp í hæstu hæð frá sjávarmáli sem ég fer á leiðinni, eða 600m. Veðrið lék við mig og var þetta í heildina mjög góður dagur. Setan á hnakknum var samt heldur löng. Uppi á heiðinni stoppuðu vinir mínir María og Konstantín og spjölluðu við mig. Þau höfðu skellt sér í Skaftafell og urðu nú að taka lengri leiðina heim.
Blíðan hélt áfram á Mývatni og setti ég þar upp tjald.
IMG_8865 IMG_8872 IMG_8875 IMG_8882

Tölfræðin samkv. mínum mæli:
Ég hef komist að því, þetta er það sama og gerðist í Berufirði, að mælirinn endurstillir sig þegar maður fer í 10 tíma hjólaða. það er ekki gert ráð fyrir tveimur tölustöfum þar. Þessvegna er ég ekki með tölurnar á hreinu.
11 tímar og 24 min á hjólinu
Komið til Mývatns 19:15
Hjólaðir km. Þarna núllstillti mælirinn en þetta eru væntanlega um 168-9 km
Meðalhraði var yfirleitt rokkandi á milli 15 og 16 km.

Dagur 8

Meiri mótvindur
Ég lagði af stað rúmlega átta í morgun frá Hótel Breiðdalsvík. Eftir smá umhugsun um það hvort ég ætti frekar að fara firðina hélt ég mér við planið og fór yfir Breiðdalsheiði. Ég eignaðist góðan vin á leiðinni sem fylgdi mér frá fyrsta bænum og hreinsaði veginn af því sem fyrir var. Kindum og fuglum. Ég ákvað að þessi nýji vinur minn, sem hélt mér selskap, héti Vaskur.  Þegar mér sýndist hann vera viljugur til að fylgja mér alla leið á Egilsstaði reyndi ég að hrópa á hann og segja honum að koma sér heim, en allt kom fyrir ekki. Það endaði með því að ég fór með hann á næsta bæ og bað bóndann þar að koma honum aftur heim. Það var mjög gaman að hafa hann þennan stutta spotta. Ég brölti svo upp á heiðina sem er 470m há. Áður en ég kom alveg á toppinn stoppaði ég og fékk mér hádegisverð og horfði yfir farinn veg.
Það blés sterkt á toppnum og því miður var öll niðurleiðin alla leið á Egilsstaði í mótvindi. C.a. 30 km. frá Egilsstöðum rakst ég á annað hundspott. Að þessu sinni þekkti ég þó hvutta. Þetta var hann Skúli sem koma hjólandi á móti mér og fylgdi mér svo í bæinn. Honum fannst hann reyndar í mikið betra formi þegar hann hólaði á móti mér en þegar hann hjólaði með mér;) Við náðum inn á Egilsstaði rétt rúmlega 5. Ég gisti á gistiheimili Olgu. Það er ofsalega flott og þakka ég fyrir mig.

Gleymdi að minnast á, að á leiðinni til Egilsstaða þá hitti ég par sem lagði af stað hinn hringinn sama dag og ég. Þau höfðu heyrt af óförum mínum og voru bara kát að sjá mig. Þau voru komin þetta langt og héldu svo yfir Öxi.
IMG_8842 IMG_8850 IMG_8852 IMG_8857

Tölfræðin samkv. mínum mæli
Komið á Akureyri 17:02
7 tíma og 27 mín á hjólinu
Hjólaðir 87 km
Meðalhraði 11.7 km/klst

Dagur 7

Kominn á ról
Ég lagði af stað frá Hótel Höfn um hálf átta. Kvöldið áður var ég satt að segja ekki viss um að ég færi af stað þennan morgun. Ég var hinsvegar betri en ég þorði að vona, sökum mikillar snilldar Bjargar læknis. Ég lagði af stað í frekar svölu veðri og láskýjað. Fljótlega rættist þó úr veðrinu og að lokum var þetta einn besti dagurinn sem ég hef hjólað hingað til. Það gustaði vel um tangana út við hafið og eins í skriðunum var mikið rok en inn í firðunum var yfirleitt hæglátt og gott að hjóla. Þegar ég kom á Djúpavog var ég enn í góðu formi. Ég ákvað þó að skella mér í sund og kíkja aðeins á hnéð. Eftir að hafa fengið mér kvöldmat ákvað ég að halda áfram í átt að Breiðdalsvík og láta það bara koma í ljós hversu langt ég færi. Kvöldið varð svo fallegt og stillt að ég endaði að lokum á Hótel Bláfell á Breiðdalsvík. Ég var kominn þangað korter í miðnætti. þreyttur og fór nánast beint að sofa.
IMG_8834 IMG_8835 IMG_8836 IMG_8840

Tölfræðin samkv. mínum mæli á Djúpavog
Stoppaði við sundlaugina 15:20
7 tímar og 1 mín á hjólinu
Hjólaðir 109 km
Meðalhraði 15.6 km/klst
Hámarkshraði 55 km/klst

Í Berufirði fór mælirinn eitthvað í rugl svo ég er ekki með heildar tölurnar.

Hnjask

Það er smá vesen á hnénu. Ég hitti Björgu á Heilsugæslustöðinni aftur kl. 16 í dag. Hún er yndisleg og búin að hugsa vel um mig. Þannig; áframhaldandi hvíld á Höfn.
siminn
gap
asics

hugsaser
Hugsa sér! Vefhönnun